Cleanlife logo

Innihald

Prenta uppskrift

Mozzarellapasta með kjúklingi

Fyrir 1

Undirbúningstími: 5 mín / Eldunartími: 12 mín

Mér finnst gott að fá mér kolvetni eftir laugardagshlaupin en ég vil líka passa próteinið. Þetta er algjörlega minn uppáhaldsréttur enda bragðgóður, litríkur og fljótlegur

  1. Vatn sett í pott með olíu og salti og suðan látin koma upp. Pastað eldað eftir leiðbeiningum
  2. Ofninn hitaður í 180 °C. Paprika skorin í bita og sett í eldfast mót ásamt tómötum, sett yfir olía, salt og pipar og bakað í 12 mín. Passa að þetta sé tilbúið á sama tíma og pastað
  3. Pastað sett í skál og pastasósunni blandað við. Kjúklingurinn er rifinn og settur yfir. Tómötum og papriku er blandað við. Mozzarella sett út í og svo furuhneturnar. Parmesan rifinn yfir og fersk basilika.