Cleanlife logo

Innihald

Prenta uppskrift

Langa á sítrusbeði

Fyrir 3

Undirbúningstími: 5 mín / Eldunartími: 20 mín

Þessi er gífurlega einfaldur og fljótlegur í undirbúningi

Ofninn er stilltur á blástur og 180 °C.

Appelsína og sítróna er skorið í sneiðar og raðað ofan á álpappír.

Langan er sett ofan á, ca 200 gr. bitar. Fiskurinn er kryddaður og smjör biti settur ofan á hvern bita. Mögulega væri gott að setja líka hvítlauk.

Álpappír lokað og búinn til poki.

Bakað í ca 20 mínútur eða þar til fiskurinn er tilbúinn, stinga í fiskinn með tannstöngli til að finna hvort að hann sé fulleldaður

Virkilega gott að bera saman með ofnbökuðu blómkáli og kúrbít og salati. Mér finnst mjög gott að setja Macademiuhnetur og þurrkuð trönuber ofan á líka.