Cleanlife logo

Innihald

Prenta uppskrift

Bleikja með dilli

Fyrir 4

Undirbúningstími: 10 mín / Eldunartími: 10 mín

Mjög fljótlegur réttur. Ég elda alltaf ríflega til að eiga afgang fyrir salat í hádeginu daginn eftir. Einnig hægt að nota lax í þennan rétt.

1. Ofninn er stilltur á 180°C + blástur.

2. Álpappír settur á ofnplötu, olía sett á og síðan er bleikjan og grænmeti (paprika, laukur, kirsuberjatómatar) sett á plötuna og allt kryddað með salti og pipar, og dill einnig sett á fiskinn.

3. Platan er sett inn í ofn og eldað þangað til það er hægt að stinga fiskinn með tannstöngli með engri mótstöðu.

4. Ætti að taka sirka 10 mínútur, en fer eftir stærð fisksins.

Mjög gott að bera fram með blómkálsmús og salati