Cleanlife er hugarfóstur mæðginanna Ásdísar Óskar Valsdóttur fasteignasala og Axels Vals Þórissonar.
Í nokkur ár hefur Ásdís verið að taka til í sínu lífi.
Fara yfir í hollari lífstíl sem og einfalda það.
Axel Valur er ástríðukokkur og hefur alfarið séð um að elda á heimilinu.
Fyrir nokkrum mánuðum byrjaði Ásdís að borða hreint fæði (ef það vex, syndir eða hleypur þá er það hreint) og smátt og smátt hefur Axel verið að þjálfa mömmu sína í eldhúsinu.
Tilgangurinn með vefnum er því tvíþættur.
- Halda utan um matseðlana okkar með það hugarfar að mamman verði sjálfbær þegar sonurinn flytur að heiman
- Leyfa öðrum sem vilja borða borða hreint nýta sér þessar uppskriftir
