1
Undirbúningstími: 5 mín / Eldunartími: 5 mín
Ég er orðin leið á því að kaupa misgott próteinduft og ákvað að prófa að gera mitt eigins. Svo átti ég eitthvað Almond Powerd duft sem smellpassaði í þetta.
Allt malað í kaffikvörn. Hver tegund er möluð í einu þar sem þær taka mislangan tíma, það tekur ekki nema svona 5-10 sek að mala og passa að mala ekki of mikið þar sem þá getur þetta orðið að smjöri. Möndluduftinu bætt út í og allt hrært vel saman. Geymt í ísskáp og samkvæmt Google þá geymist þetta ekki of lengi þannig en ég held samt að það sé óhætt að gera þessa tvöfalda þar sem ég kláraði hana á 4 dögum. Ég nota þetta hreinlega í allt. Set í boost, jógúrt, í uppskriftir, yfir ofnbakað grænmeti. Eina sem þarf er hreinlega hugmyndaflug.