Cleanlife logo

Innihald

Prenta uppskrift

Kjúklinga stirfry

Fyrir 4

Undirbúningstími: 10 mín / Eldunartími: 15 mín

Ég fékk Axel til mín til að græja þetta. Ég reyni að elda stærri uppskriftir í einu og eiga þá nokkrar máltíðir bæði þegar ég tek langar æfingar og nenni ekki að elda eða í hádeginu ef ég er tímabundin. Þessi er nokkuð fljótleg og svo fannst mér mjög gott að setja smá Kashewhnetusmjör og saxaðar Kashewhnetur yfir. Gæti einnig verið gott að nota Bambus og/eða maískorn í þennan rétt.

1. Kjúklingalundir eru skornar í bita og eldaðar á pönnu. Eldunartími ca 15-20 mín. Kryddað eftir smekk.

  1. Allt grænmetið er skorið í passlega bita og eldað á stærri pönnu. Eldunartíminn er ca 10 mín hérna. Kryddað eftir smekk.
  2. Allt sett saman á stærri pönnuna og látið malla í smá tíma. Setjum t.d. Mirin, Sesamolíu og Tamarin til að fá meira bragð.