Undirbúningstími: 5 mín / Eldunartími: 5 mín
Þetta er algjört uppáhald eftir morgunæfingar á veturnar
Sósan:
1. Berin og vatnið er sett í pott og hitað saman þar til orðið að mauki
Chiagrauturinn:
1. Chiagrauturinn er settur í skál/glas
2. Sósunni hellt yfir þegar hún er tilbúin.
3. Kókósflögur og pekanhnetur brotnar í tvennt og settar yfir.
4. Ber eru sett yfir eftir smekk
Mér finnst mjög gott að setja loks kókósrjóma yfir og granateplafræ
Það er hægt að nota hvaða ber sem er í sósu. Mitt uppáhald er hindber þar sem þau eru fljótust að maukast og á eftir því bláber. Síst finnst mér að nota jarðarber, þau eru lengst að eldast og brenna helst við botninn.
Mín rútína er að láta berin malla á meðan ég tek vítamínin og hita mér sítrónuvatn og tek lýsið og óreganoolíuna.
Ef þörfin fyrir eitthvað sætt er yfirþyrmandi þá er tilvalið að gera heita berjasósu og hella yfir hana kókósrjóma, algjört nammi.
Þessi réttur er líka frábær sem millimál og eftirréttur